Börnin mín
|
Þó fjölskyldan flokkist að sjálfsögðu mikið til undir ábyrgð og skyldur þá nýt ég mín og líður best í faðmi hennar og er hún því í fyrsta sæti yfir áhugamál mín. Í faðmi barna minna og fjölskyldu vil ég helst vera þegar ég á frítíma. |
Líkamsrækt |
Ég reyni að fara í ræktina helst 5-6 sinnum í viku. Í dag er það orðið eitt af mínum helstu áhugamálum að hugsa um líkamann, æfingar og matarræði. Ég verð samt að viðurkenna að þetta áhugamál kom ekki til af góðu. Ég lenti í bílslysi fyrir nokkuð mörgum árum síðan og í kjölfarið barðist ég við bakverki í langan tíma. Ég tók þá ákvörðun að reyna að þjálfa þetta í burtu, árangurinn stóð ekki á sér og var svo mikill að ég hef ekki hætt að æfa síðan. |
Línuskautar |
| Mér finnst mjög skemmtilegt að fara á línuskauta. Það er skemmtileg íþrótt sem þjálfar allan líkamann, bæði úthald og vöðva en einnig snerpu. Að fara góðan spöl á línuskautum fer mun betur í mig en t.d. hlaup eða skokk þegar kemur að hreyfingu úti við. |
Fjórhjól |
Ég hef rosalega gaman af því að henda mér á fjórhjól og taka vel á því. Því miður er það mjög tímafrekt og dýrt áhugamál og hef ég því ekki hellt mér í það af fullum þunga.
Ég hef engu að síður náð góðum árangri þar og það sem er sérstaklega skemmtilegt við þetta áhugamál mitt er að sonur minn hefur líka mikinn áhuga á fjórhjólum. Ég hef því verið duglegur að fara með honum í ferðir og leikum við okkur þá saman um leið og ég kenni honum. |
Mótorhjól |
Ég tók mótorhjólapróf fyrir 6 árum síðan en hef því miður ekki hjólað mikið á þeim árum sem ég hef verið með prófið. Þetta er samt sem áður klárlega eitt af því sem ég stefni á að gera mikið af á mínum efri árum því þetta er virkilega skemmtilegt áhugamál og þar spilar félagsskapurinn einnig mikið og stórt hlutverk. |
|