Halló,halló!
Takk fyrir að kíkja og skoða vefinn hjá mér. Ég hef verið að vinna í að setja hann upp og er hann því enn í vinnslu. Ég vona að þið sem skoðið hafið það í huga og fylgist með framhaldinu.
Eins og sjá má hef ég haft mikið að gera síðastliðin ár og hef tekið mér ýmislegt fyrir hendur. Margt af því sem ég hef gert hef ég hannað frá grunni sjálfur. Þá hef ég unnið út frá eigin hugmynd, hannað, skorið út og skilað af mér á lokastað. Við annað hef ég fengið aðstoð frá mjög góðu og hæfileikaríku fólki.
Vonandi sjáið þið eitthvað sem ykkur líkar og verið endilega ófeimin við að hafa samband við mig ef þið hafið áhuga á að vita meira eða hafið einhverjar spurningar. Eins ef þið hafið ábendingar um eitthvað sem þið sjáið að betur megi fara þá tek ég þakklátur við þeim ábendingum.
Bestu kveðjur,
Lúlli
|